Hversvegna?

Ég get ekki skilið hvað fólk er að gera uppá jöklum þegar búið er að vara við vondum veðrum. Ætli fólk fylgist yfirleitt ekki með veðurspám? Mér finnst líka tímabært að loka vegum að jöklunum þegar spáð er vondum veðrum. Mér finnst að það fólk sem fer í jöklaferðir í tvísýnu veðri sé að storka náttúruöflunum, og yfirleitt hafa náttúruöflin betur. Samt vona ég innilega að þau sem verið er að leita að finnist heil á húfi.  En það á tvímælalaust að loka aðgengi að jöklum ef veðurspá er vond.
mbl.is 150 leita við slæmar aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

hvernig ætlar þú að láta fylgjast með lokununum?

Sveinn Elías Hansson, 14.2.2010 kl. 22:18

2 Smámynd: Guðlaugur Hermannsson

Jökull um há vetur er ekki útivistarsvæði frekar en jarðsprengjusvæði í stríðshrjáðum löndum.

Guðlaugur Hermannsson, 14.2.2010 kl. 22:29

3 identicon

Í eðlilegu vetrarárferði eru jöklar að öllu jöfnu hættuminni en frá miðsumri og fram á haust. Á veturna og fram á vorið ættu að vera orðin þykk snjóalög sem loka sprungum. Þessu hefur ekki verið þannig farið þennan veturinn sem er harla óvenjulegt.

Hitt er veðrið. Ekki geta Íslendingar kvartað yfir slæmu veðri í vetur og kannski er það að koma í bakið á mörgum. Fólk gerir sér kannski ekki eins grein fyrir hvernig vetrarveður getur verið og fylgist kannski illa með spám. Nú veit ég ekkert hvernig því var háttað hjá þessum hópi sem ferðaðist um Langjökul. En víst er að þegar tíðin hefur verið góð, þá verðum við stundum værukær gagnvart veðrinu.

Guðmundur (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gísli Már Marinósson
Gísli Már Marinósson
húsasmiður áhugamál skotveiðar þjóðmálin og margt fleira
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband